2022

Fyrsta árið hjá klúbbnum gekk vel. Við spiluðum í Bola deildinni sem er 7 - manna utandeild á hálfum velli á litlum mörkum. Þorlákur vann 15 leiki af 16 sumarið 2022 og við unnnum deildina. Boladeildar meistarar 2022. Það var strax sett markmið að fara í 11 manna deild hjá KSÍ 2023.

 

7. mars 2022: Fyrsta æfing Þorlákur FC.

(Mæting: Siggi T, Siggi D, Birkir, Breki, Alli, Kalli, Hrannar, Jónas, Bjarni)

20. september 2022:  Boladeildar meistarar

22. nóvember 2022:  Íþróttafélagið Þorlákur stofnað

2023

10. janúar 2023: Ákvörðun tekin hjá stjórn ÞFC að taka annað tímabil í 7 manna deild. Kostnaðurinn við að fara í deild hjá KSÍ er mikill. Ef maður tekur allan pakkan saman. Heimavöllur, æfinga aðstaða, skráning í KSÍ, keppnisgjald, búningar, aukahlutir, dómgæsla svo einhvað sé nefnt. Markmið félagsins er að fara í 11 manna deild hjá KSÍ 2024.

 

Hvernig ætlum við að fjármagna næsta ár (2024)?: Í ár ætlum við að bjóða upp á Þorlákur merch. Allir sem kaupa merch eru að styrkja okkur fyrir næsta sumar (2024). Við bjóðum upp á nýjar glæsilegar keppnis treyjur, derhúfur og trefla.

 

Þinn stuðningur skiptir okkur ótrúlega miklu máli.